Contacts
Info
Hlaðvarp
Ein Pæling
Ein Pæling
14 SEP 2024 · Þórarinn ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins í annað sinn. Að þessu sinni er rætt um stjórnmálin, fjölmenningu, hnignun Vestrænnar menningar, vanrækt saga Íslands, fordóma í garð fyrri kynslóða og margt fleira.
Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling
10 SEP 2024 · Þórarinn ræðir við Gísla Frey Valdórsson, kollega sem heldur úti Þjóðmálum. Í þessum þætti er rætt um stöðu ríkisstjórnarinnar og Sjálfstæðisflokksins sérstaklega, gengdarlaus ríkisútgjöld, rétttrúnaðinn, eitraðar karlmennsku, fjölmiðlanefnd, mannréttindastofnun, upplýsingaóreiðu í veirufaraldri og margt fleira.
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
7 SEP 2024 · Þórarinn ræðir við Sigurð Orra Kristjánsson um stjórnmálin, afhverju hann hætti í Samfylkinguna fyrir Viðreisn, ESB, efnahagsmálin, Bandarísk stjórnmál, rétttrúnað og margt fleira.
Til að nálgast þáttinn í heild sinni má fara á www.pardus.is/einpaeling
1 SEP 2024 · Björn Brynjúlfur Björnsson er framkvæmdarstjóri Viðskiptaráðs. Í þessum þætti er rætt um stöðu barna í skólakerfinu og varhugaverða þróun á hinum ýmsu sviðum. Rætt er um PISA-kannanir, hagsmunaöfl kennara, stjórnmálin, afhverju foreldrar eigi rétt á því að nálgast gögn um árangur barnanna sinna og hvað sé til ráða.
Til að styrkja þetta framlag má fara inn á pardus.is/einpaeling
29 AUG 2024 · Georg Leite er bareigandi í Reykjavík og frumkvöðull á ýmsum sviðum. Í þættinum er rætt um breytingar á skemmtanalífi undanfarin ár sem Georg segir birtast í aukinni glæpa of ofbeldistíðni og telur hann lögregluna hafa fá úrræði til þess að takast á við þennan nýja veruleika.
Þá er einnig rætt um getu Íslands til þess að taka á móti fólki með erlendan bakgrunn, rasisma, fréttaumfjallanir og margt fleira.
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
- Kemur hnífsstunguárás á Menningarnótt fólki á óvart?
- Er miðbær Reykjavíkur orðinn hættulegri en áður?
- Getur lögreglan tekist á við nýjan veruleika?
- Afhverju er erlendum aðila sem fremur hundruð afbrota ekki vísað úr landi?
Þessum spurningum er svarað hér.
26 AUG 2024 · Þórarinn ræðir við Ágúst Bjarna, þingmann Framsóknarflokksins um húsnæðismál, útlendingamál, stöðu ríkisstjórnarinnar og stöðu skólamála.
- Er eyðsla stjórnvalda áhyggjuefni ríkisstjórnarinnar?
- Heldur ríkisstjórnin?
- Hvað er hægt að gera í húsnæðismálum?
Þessum spurningum er svarað í þættinum. Sjá þátt í heild á www.pardus.is/einpaeling
18 AUG 2024 · Þórarinn ræðir við Agnar Tómas Möller um stöðu efnahagsmála. Fjallað er um hvort að hægt sé að lækka stýrivexti, skuldabréfakaup, stjórnmálin, vinnumarkaðinn og margt fleira.
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
14 AUG 2024 · Þórarinn ræðir við Guðmund Fertram, stofnanda og forstjóra Kerecis. Fjallað er um stöðu Landspítalans, innviði á Vestfjörðum, stjórnmálin og ríkisstjórnina, orkumál, samgöngumál, yfirstéttina úr Reykjavík, alræði neitunarvaldsins, fiskeldi og margt fleira.
1 AUG 2024 · Atli Harðarson er prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Í þessum þætti eru hugmyndir og bækur Jonathan Haidt ræddar og þá sérstaklega hans nýjasta, The Anxious Generation sem fjallar um aukinn kvíða barna sem Haidt telur eiga rætur sínar að rekja í símanotkun.
21 JUL 2024 · Ómar Annisius er fyrrum sérsveitarmaður en starfar í dag sem aðstoðaryfirlögregluþjónninn á Keflavíkurflugvelli. Í þessum þætti er rætt um stjórn og málefni landamæraeftirlits.
- Er óstjórn á landamærunum?
- Hver eru áhrif stjórnmálanna?
- Hvaða áhrif hefur umræðan á störf lögreglu?
Þessum spurningum er svarað hér.
Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling
Hlaðvarp
Information
Author | Thorarinn Hjartarson |
Organization | Thorarinn Hjartarson |
Categories | Society & Culture |
Website | - |
- |
Copyright 2024 - Spreaker Inc. an iHeartMedia Company